Vinnuföt hefur alla tíð verið mjög framarlega þegar kemur að því að þjónusta vottaðan eldvarnarfatnað.
Starfsfólk okkar hefur aflað sér mikillar sérþekkingar á eldvarnarfatnaði síðustu ár.
Við leiðbeinum um val á réttum undirstaðli allt eftir því hvaða notkun er um að ræða.
Stærstu notendur landsins á þessu sviði starfa með okkur, en má þar nefna álverin þrjú og öll stærstu orkufyrirtækin.
Þetta þýðir að hjá okkur er stór þjónustulager til af vörum í þessum flokki.
Fatnaðurinn í þessum flokki kemur frá Björnkläder, en þónokkur hluti hans er sérframleiðsla.